Weather Forecasts | Weather Maps | Weather Radar

Monday, September 03, 2007

Fréttir sméttir

Síðasta helgi var löng helgi hérna, þótt ég hafi að mestu verið að vinna í dag. En það er bara af því að ég gerði helling skemmtilegt um helgina:)

Á föstudaginn bjó ég til pönnukökur fyrir vinahópinn og endaði það í ofurumræðum um femínisma. Þar datt líka e-um í hug að leigja 11 manna bíl daginn eftir til að fara til LA:) Ég bjóst aldrei við að við myndum framkvæma það (þar sem við hefðum vel getað farið á tveimur bílum) en daginn eftir stóð þessi rosa "rúta" fyrir utan!:)
Bíllinn góði:)
Í L.A. fórum við í Getty (verð að fara þangað aftur, ótúrlega flott og allt ókeypis), á líbanskan veitingastað og búðarrölt í Santa Monica. Mjög skemmtileg ferð:)

Mæli með líbönskum mat!


Á sunnudaginn fórum við svo til Morro Bay og leigðum kajaka. Kom á óvart hvað það er ótrúlega gaman, verð að fara á kajak aftur:)

Kletturinn sem Morro Bay er þekktur fyrir


Það er e-r hitabylgja í gangi hérna og vá hvað það var heitt í dag!:)

3 Comments:

Anonymous bjarnheidur said...

oh snilld! gott að hafa framtakssamt fólk í kringum sig :D

10:04 AM  
Blogger Brynja said...

Kajak er snilld:)

1:01 PM  
Anonymous Þóra said...

Ohhh.. öfunda þig af allri þessari sól. Það er búið að rigna stanslaust hér í viku... :(

Og já, til hamingju með ritgerðina :)

2:26 PM  

Post a Comment

<< Home