Weather Forecasts | Weather Maps | Weather Radar

Monday, May 15, 2006

Og annað met!

.... og að þessu sinni í drasliríi. Ég held að ég hafi slegið presónulegt met í ruslagangi og það þarf sko mikið til. Ekki að það sé e-ð langt síðan ég tók til heldur ákvað ég bara að gera allt í gær og það er því miður ekki í boði í 10 fermetra herbergi. Þar sem ég nennti ekki að læra meira ákvað ég að þvo og sauma (fyrst Svanhildur dröslaði nú saumavélinni hingað) svo núna þekur straubretti, saumavél og hálfblautur þvottur hvern einasta krók og kima í herberginu (og ekki bætir það nú ástandið að herbergið er að springa af drasli sem ég hef sankað að mér síðasta árið). Það eina sem sést í ógeðslega teppið eru svona þrír örsmáir blettir svo ég geti tipplað frá rúminu og út úr herberginu:) Draslið hefur sýna kosti og galla (ok bara galla, má vera í smá afneitun hérna;)) t.d. finn ég hvorugan burstann minn! Ég hef því litið út eins og reitt hæna síðustu daga:Þ. Það stendur þó til bóta því í kvöld er 2 klst season finale af Grey´s anatomy svo ég ætti að geta tekið til í auglýsingarpásunum:)

PS. Elska sjúkratryggingar a.m.k þegar maður þarf ekki að borga þær sjálfur:) Fékk áðan $380 ávísun til baka út af ofnæmisprófunum. Þar sem ég bjóst alveg eins við að fá ekki neitt kom þetta ansi skemmtilega á óvart:D

6 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Lokathatturinn af Grey's var rosalegur... Uff! :)

7:20 AM  
Anonymous Anonymous said...

Bannað að tala meira um Grey's.... er bara komin á þátt 26.

Btw við söknuðum þín síðasta lau. ég var eini fulltrúinn véla-megin því það vantaði þig og Þórhildi... en það var mj. gaman - ég skal senda þér myndir :-)

5:32 PM  
Anonymous Anonymous said...

hah smáhýsið mitt er einmitt eins og þín híbýli núna.. allt á hvolfi, lét manneskju bíða fyrir utan um daginn meðan ég náði í dót inn :s

-Ösp

3:30 AM  
Anonymous Anonymous said...

What a great site, how do you build such a cool site, its excellent.
»

3:59 AM  
Blogger Ásdís said...

Þóra: Á Grey´s var skemmtilegur! og nú í kvöld tveggjatíma lokaþáttur af Desp. House wifes. ég horfi pottþétt:)
Sif: Já ég vildi að ég hefði komist, kem a.m.k. pottþétt í júlí!
Ösp: ég efast alveg stórlega um að það sé jafn slæmt og hérna:) en það er alveg fáránlegt hvað það er fljótt að draslast:S

8:25 PM  
Anonymous Anonymous said...

Nice idea with this site its better than most of the rubbish I come across.
»

12:39 PM  

Post a Comment

<< Home