Weather Forecasts | Weather Maps | Weather Radar

Thursday, November 30, 2006

Thanksgiving, mús og brjálað að gera

Um síðustu helgi var þakkargjörðarhátið hér í Bandaríkjunum. Kollegi mömmu sem býr í Riverside (um 100km inn af LA) bauð mér að eyða helginni með þeim hjónum og stórfjölskildu. Það var mjög gaman, fékk að kynnast alvöru amerískri Thanksgiving (jafnvel þótt Wilfred sé breskur og Lola áströlsk þá eru börnin þeirra bandarísk) og hitta litlu barnabörnin þeirra (sem er sko ágætis tilbreyting frá því að umgangast bara fólk á aldursbilinu 20-30 ára). Ég ætla fylgja nýjast blogg trendinu og láta bara myndir fylgja;)

Lola ofurkokkur, eldaði ofan í 20 manns.


Wilfred, Joey og Barritt að hlaupa upp fjallið í bakgarðinum. Wilfred hleypur upp fjallið á hverjum einasta degi!


Dúllu krakkarnir Barrit, Zoe, Joey og Zachary (eða Jackary eins og Barritt kallar hann;))

Ég (svona til að sanna að ég var á staðnum, þetta eru ekki bara myndir af e-u fólki sem ég fann á netinu;)) og John (sem var alltaf kallaður the baby þótt hann sé eins árs, sé fyrir mér á Íslandi ef það væri venjan þar líka, hvað myndu börn vera kölluð? ungabarnið?lilli/a? óvitinn? krakkinn? veit ekki)

Á leiðinni heim frá Riverside stoppaði ég í molli í Beverly Hills sem var með H&M og fleiri góðar búðir. Ekkert alltof góð hugmynd svona eftir á séð;) Váhá hvað ég missti mig:S Til að seðja samviskubitið, skellti ég nokkrum jólagjöfum með (en þær náðu ekki einu sinni upp í 40% af því sem ég keypti, úbbs).

Í gær fjölgaði enn og aftur í íbúðinni okkar Morgane. Ekki var það froskur í þetta sinn heldur mús sem var föst inni í flúorljósinu í eldhúsinu okkar. Hef ekki hugmynd um hvernig hún komst þangað né hvert hún fór. Því í morgun þegar við vöknuðum var hún farin. Mér fannst e-rn vegin betra að vita þó a.m.k. hvar hún var en þessi nýi meðlegjandi er greinilega hvorki sammála né smavinnuþýður!

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

hugsa sér að hafa eitt stykki fjall í bakgarðinum! flottar myndir :) einhver frændsystkina minna voru kölluð skotta og snáði þegar þau voru lítil og kannski kríli þegar þau voru pínukríli...

6:52 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hahaha... ég sé þig alveg fyrir mér að reikna hvað jólagjafirnar voru mikið af innkaupunum... örugglega á milli 37 og 39% ;-)
Alveg ekta þú! :-p

5:26 AM  
Anonymous Anonymous said...

ég fór einmitt í H og M í Osló um helgina, voða sniðugt, dýrasta h og m ið á norðurlöndunum, jólagjafirnar hjá mér voru 50% þar sem ég keypti bara í heildina 4 flíkur, hvenær kemurðu aftur heim?

kv.
Ösp

6:49 AM  
Blogger Ásdís said...

Bjarnheiður: já ég veit hálf klikkað að búa í bæ jafn fjölmennum og Ísland, með fjall í bakgarðinum en samt bara 20 mín að keyra í miðbæinn.
Já börn heima eru stunduð kölluð e-ð annað sérstaklega áður en þau eru nefnd en þetta voru bara svo miklar öfgar. Það var aldrei minnst á hann nema sem "the baby" og krakkarnir þurftu alltaf að passa sig af því að hann var "just a baby". Hljómaði svolítið eins og hann ætti bara að gegna þeirri stöðu;)
Íris: hehe já ef þú vilt fá það nákvæmt þá voru jólagjafirnar 37,3549884%;)
Ösp: ég kem heim 19. eldsnemma. H&M hefur bara svona áhrif á okkur, tókum nú ágætis rispu í Berlín. Hvað fórum við í 7 af 9 H&M í Berlín?;) Þú hefur samt greinilega náð að hemja þig meira en ég:)

10:39 PM  

Post a Comment

<< Home