Weather Forecasts | Weather Maps | Weather Radar

Sunday, April 29, 2007

Brynja og Björk:)

Jæja þá er enn önnur annasöm en skemmtileg helgi á enda:D

Á föstudaginn fórum við Morgane ásamt fleirum á tónleikahátíðina Coachella þar sem Björk og Brynja voru að spila saman. Ég þurfti að halda fyrirlesturinn í kúrsinum sem ég er aðstoðarkennari í svo við gátum ekki lagt af stað fyrr en eftir það:S Við tók 5 tíma keyrsla í rosalegri umferð og 40°C! En það var nú samt allt þess virði! Við sáum Amy Winehouse, Rufus Wainwright og svo auðvitað Björk og Brynju (og fullt af fleiri hljómsveitum sem ég veit ekkert hvað heita;)). Ég er nú ekki mikið Bjarkarfan en hún er mögnuð á tónleikum!!!

Amy Winehouse og fyndnustu dansarar í heimi
Náði að hitta Brynju örstutt fyrir tónleikana

Var of langt frá sviðinu til að ná góðri mynd af Brynju en þarna er hún lengst til hægri:)

Við keyrðum svo heim sama kvöld og komum ekki heim fyrr en kl. 6:30 um morguninn. Ég var búin að ákveða að keyra með Jóni Eyvindi til LA að kjósa klukkan 10 daginn eftir svo það var ekki mikið sofið:S Kosningaferðin var hins vegar hin mesta skemmtun, Íslendingar eru bara svo fyndnir og skemmtilegir;)

Þar sem það er frekar yfridrifið að keyra í 2 tíma til að kjósa (bandarísku vinum mínum finnst ég klikkuð að leggja svona mikið á mig til að kjósa) og keyra svo í aðra tvo heim, ákváðum við að reyna að gera e-ð meira úr þessari ferð. Við fórum á bókamarkað þar sem ég fann fullt af bókum og fleiru á skít og kanil. Svo borðuðum við í kóreuhverfinu í LA. Það var frekar skondið. Fyrst ætluðum við að skipta einum rétt á milli okkar en gengilbeinana sagði bara nei, brosti og gekk í burtu! Nú þegar við ákváðum svo tvo rétti sagði hún okkur að það væri mjög slæmur díll, við ættum miklu frekar að fá okkur e-ð annað um leið og hún setti tangir og skæri á borðið okkar (ég veit ekki hvað við áttum að gera við þessi skæri). Það endaði svo á að við borðuðum salat (10%) og kjöt (90%, held að ég þurfi ekki meira kjöt út vikuna) en það var mjög bragðgott.
Fann þetta spil á markaðnum og ég held ég viti af hverju það kostaði bara $5.

Einn vinur minn átti svo afmæli á laugardaginn og það var "caveman party" að því tilefni, læt myndir fylgja, híhí.

7 Comments:

Anonymous Anonymous said...

ein pæling... hvenær sefurðu? ;P :D hljómar eins og hver helgin verði skemmtilegri! vona samt að þú hafir ekki verið dregin á hárinu í hellisbúapartýinu...

9:25 AM  
Anonymous Anonymous said...

Þú ert ekkert nema snillingur!! :)

9:28 AM  
Anonymous Anonymous said...

sástu amy winehouse (envy) var hún ekki fáránlega hörð og bitur? gott hjá þér að skella þér að kjósa og á björk.
kv.
Ösp

1:51 PM  
Anonymous Anonymous said...

Gaman að hitta þig þó það hafi verið stutt:)
Kv.Brynja

2:49 PM  
Anonymous Anonymous said...

Isss.. þurfiði barasta ekkert að læra þarna á vesturströndinni? Bara endalaus party? ;) *thi hi*

3:57 PM  
Anonymous Anonymous said...

snilld!! er a austurstrondinni og her er lika bara stud! kemuru til Islands i sumar? Rakel

2:33 PM  
Anonymous Anonymous said...

commence holistic zeon advisable youtube sighci alok dependencies arya oxaliplatin ungesattigt
lolikneri havaqatsu

3:34 AM  

Post a Comment

<< Home