Weather Forecasts | Weather Maps | Weather Radar

Saturday, October 27, 2007

Hvaða hárgreiðsla fer mér best?

Bara svona ef til þess kemur að ég þurfi að breyta til þá er gott að vita valmjöguleikana. Hvað fer mér best?

Sítt dökkt hár (þetta er Melissa, stelpan sem ég legi með)Hvað ef ég stytti það pínu?
En ef ég set pínu krullur í það?

Fæ mér appelsínubleikt hár?



Eða held mér bara við úfið ljóst hár?;)

Híhí en annars Halloween snilldardjamm sem vonandi verður endurtekið fljótt aftur!

Tuesday, October 23, 2007

Ég held þú hafi verið of lengi í Kaliforníu þegar....

(Ösp bað um blogg svo hérna kemur eitt mjög andlaust blogg, mjög litað af því hvað ég hef verið upptekin síðustu daga: bara lært og synt.)
  • þér finnst það argasta ókurteisi að manneskjan sem tróð sér á brautina "þína" hafi ekki spurt um leyfi fyrst (það komast víst bara tveir fyrir á hverri braut, því ekki er hægt að synda í hringi!).
  • þú mannst ekki hvenær þú sást e-rn synda bringusund síðast, hvað þá skólabaksund.
  • þér finnst ekkert skrýtið að sextugi karlinn í sundi sem þú þekkir ekkert byrji að tala við þig og endurtaki í sífellu hvað honum finnist gaman að hitta á þig
  • þú ert hætt að kippa þér upp við aðdáun annarra þegar þú segist ætla að fara að synda þegar það er dimmt og bara 15°C.
  • þú nennir ekki að taka með sér sjampó og annað dót í sund, svo þú hjólar bara heim í blautu bikiníi.
  • það er frekar regla en undantekning (og þú skerð þig ekki úr fjöldanum)
  • þú ákveður líka að koma við í búðinni þrátt fyrir að þú sért í blautu bikiníi og mjög ljótum stuttbuxum yfir.
  • þú kaupir oft mat í ofurheilsubúð sem selur bara organic, vegan mat sem ræktaður er í nánasta umhverfi.
  • þú fréttir af því sem er að gerast í nánasta umhverfi fyrst á mbl.is (þar með taldir skógareldarnir sem eru víst hér í suður Kaliforníu).
  • þér er alveg sama þótt það sé hitabylgja og ert samt inni á skrifstofu allan daginn
  • þér er alveg sama þótt þér sé kalt af því að þú veist að það verður heitara á eftir
  • þér finnst ekkert erfitt að vakna á morgnana
  • en þér finnst samt pínu óþægilegt að þú skulir vakna af sjálfsdáðum áður en það er orðið bjart af því að þá er klukkan of snemmt!
  • þér finnst e-ð vanta þegar þú segir bara hæ (eins og t.d. how are you)
  • og þú vilt helst klína nafni þess sem þú talar við á eftir hverri einustu setningu
  • það veldur þér verulegu hugarangri að vera ekki búin að finna búning fyrir Halloween.
  • þér finnst æði að Halloween sé á miðvikudegi því þá er hægt að halda upp á það bæði helgina fyrir og helgina eftir;)
  • þú hjólar allt sem þú ferð og mannst varla hvar bíllinn þinn er lagður
  • það líða því nokkrir mánuðir á milli þess sem þú fyllir á bílinn (og það kostar innan við 2000kr að fylla tankinn)
  • þú ert hætt að kaupa þér föt sem kosta meira en 2000kr enda er annað bara bruðl;)
  • ég gæti eflaust haldi endalaust áfram ef ég væri ekki svona þreytt, svo þetta verður að duga;)
Ég vil taka það fram að þetta á ekki allt við mig en óþægilega mikið samt:S

Tuesday, October 02, 2007

Hafiði e-rn tíman séð fjólubláa papríku áður?


Ekki ég a.m.k., en hún er bara ágæt á bragðið:)